Miðvikudagur, 9. maí 2007
Tvöföldun á fylgi á tveimur dögum?
Þessar raðkannanir sýna mikla sveiflu á fylginu milli daga. Það getur vart verið að fylgi flokkana sé að breytast svona mikið milli daga. Sérstaklega að Framsókn nái að nánast tvöfalda fylgi sitt á tveimur dögum. Þetta er sérstaklega undarlegt í ljósi þess hve fáir mælast óákveðnir í þessum könnunum.
Því miður virðist lítið að marka þessar kannanir. Hættum að hugsa um þær. Ræðum svo úrslitin á sunnudagsmorgun.
Annars er fróðlegt að rifja árið 2004 upp með hjálp Áramótaskaupsins.
Miðvikudagur, 9. maí 2007
Geir fær ekki boð um laxveiði í stjórnarandstöðu
Það er rétt að benda Geir og Sjálfstæðisflokknum á það að nú er kosið til framtíðar, ekki til fortíðar. Það er komið nóg af stefnuleysi í efnahagsmálum. Það væri glapræði að halda áfram á sömu braut, án þess að hafa skýra stefnu um hvert sú braut eigi að leiða okkar þjóðfélag.
En það er skiljanlegt að Geir vilji ekki fara í stjórnarandstöðu. Hver vill það? Hann heldur því uppi hræðsluáróður, það eina sem flokkurinn kann fyrir þessar kosningar. Ætli hann sé ekki hræddur um að fá ekki lengur boð í laxveiðiferðir. Hann komst nú aldeilis í fréttirnar fyrir laxveiði árið 2003. Sjá upprifjun á árinu 2003 með hjálp áramótaskaupsins.
Þriðjudagur, 8. maí 2007
Það er bara einn flokkur á Íslandi ...
Fögnum með músík góðu gengi Samfylkingar
Bloggar | Breytt 9.5.2007 kl. 16:53 | Slóð | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. maí 2007
Skandalar síðustu 12 ára
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. maí 2007
Hvaða erindi á Geir H. Haarde?
Fylgiskannanirnar eru farnar að gefa raunsærri mynd að því hvernig kosningarnar muni enda. Eftir því sem fleiri ákveða sig þeim mun betur gengur Samfylkingunni. Hvers vegna ætli það sé?
Sjálfstæðisflokkurinn á mjög erfitt með að ná í nýja kjósendur. Þeir eiga erfitt með það því erindi þeirra við þjóðina nú er óljóst. Hvaða erindi á Geir H. Haarde við okkar þjóð?
Það er klárt mál að flokkurinn og Davíð Oddsson átti erindi við þjóðina er hann fór í ríkisstjórn árið 1991. Vel var ágengt og til varð opið samfélag og fjármálageirinn einkavæddur. Sumarið 2003 upplýsti Hannes Hólmsteinn í sjónvarpsþætti að eldmóður hans væri nú minni vegna þess hve vel hefði gengið að breyta samfélaginu á þann veg sem var stefnt að. Hans erindi var lokið. Davíð Oddsson hvarf af vettvangi þegar hann hafði lokið sínu erindi.
Það eina sem Geir lofar er að halda áfram á sömu braut. Ef ég man rétt þá sagði hann í nærmynd á Stöð 2 að hann væri ekki mikill hugsjónamaður. Það getur verið stórhættulegt að vera sífellt á sömu braut án þess að gera sér grein fyrir hvert sú braut mun leiða þjóðfélagið. Það er ekki nóg að hafa braut hún verður að hafa vel skilgreindan enda. Vonandi mun Geir H. Haarde ekki vakna upp einn góðan veðurdag og uppgötva sér til mikillar gremju að þjóðfélagið hafi breyst til hins verra því of lengi var haldið stefnulaust á sömu braut.
Það er mikilvægt að koma í veg fyrir að haldið verði stefnulaust áfram. Samfylkingin er augljóslega besti kosturinn fyrir þá sem vilja sterka og frjálslynda félagshyggjuflokka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3. maí 2007





