Mánudagur, 21. maí 2007
Kominn tími á unga og hæfileikaríka ríkisstjórn
Spennan eykst með hverjum klukkutímanum. Hvernig mun nýja ríkisstjórnin verða skipuð. Ég geri einungis kröfu um að litið verði til yngri þingmanna sem eru fullkomlega hæf til að sitja í ráðherrastól.
Unga og hæfileikaríka ríkisstjórn, takk fyrir.
Laugardagur, 19. maí 2007
Ágæt viðskiptahugmynd
Sunnudagur, 13. maí 2007
Núverandi ríkisstjórn með minnihluta atkvæða
Laugardagur, 12. maí 2007
Búinn að kjósa
Í dag verður kosið um breytingar. Það er gríðarlega þýðingarmikið að fólk fjölmenni á kjörstað og kjósi um bjartari framtíð. Ég fór á kjörstað og kaus rétt og það sama gera vonandi allir.
Ég kaus í Reykjavík Norður. Ég var fyrir margtlöngu búinn að ákveða hvar atkvæðið skyldi lenda. Í kjörklefanum leit ég yfir nafnalistana og styrkti það mína ákvörðun enn frekar. Valið í Reykjavík Norður er svo einfalt. Össur Skarphéðinsson er þar lang sterkasti pólitíkusinn. Hafi ég einhverntíma haft eitthvað álit á Guðlaugi Þór þá hvarf það endanlega, fyrir fullt og allt, í kosningabaráttunni.
Föstudagur, 11. maí 2007
Framsókn lofar hærri 90% lánum
Ekki var þungum skotum skotið á formennina. Ekkert í þeim stíl sem ég setti upp hér í færslunni á undan.
Þess má geta að Framsóknarflokkurinn ætlar aftur að sprengja upp húsnæðisverði og þenslu samfara því. Nú bætir hann í kosningaloforð sitt um 90% íbúðalán frá síðustu kosningum. Nú á að lána enn meira. Nú á að miða lánin við markaðsverð en ekki brunabótamat. Það er ljóst að þá munu stjórnvöld missa endanlega tökin á hagstjórninni.
Tekið úr stefnuskra_xb.pdf:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóð | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 11. maí 2007
Er Geir H. Haarde í guðatölu?
Ríkisstjórnin er handónýt. Ekki hefur mikið verið þjarmað að t.d. Geir H. Haarde. Hvaða erindi hann hefur við okkar þjóð er mér óskiljanlegt. En það er ljóst að það er til fólk sem dýrkar hann. Hér er hann hylltur sem guð.
Það hefur vantað brodd í sjónvarpsumræðurnar. Vonandi verða spurningar á þessa leið spurðar í lokaumræðum RÚV í kvöld. (því miður eru litlar líkur á því)
- Ætlar Geir H. Haarde að halda áfram á sömu braut
okurvaxta og þenslu? Sömu braut úreltar efnahagsstefnu með
endalausum innspýtingum stórframkvæmda inn í hagkerfið sem kaffærir öll
önnur atvinnutækifæri? Sömu braut einkavæðingar á einokunarmarkaði?
Sömu braut hækkunar á húsnæðismarkaði sem gerir ungu fólki ókleift að
fjárfesta í eigin húsnæði?
- Framsóknarflokkurinn lofaði 90%
húsnæðislánum fyrir 4 árum til að aðstoða ungt fólk til að kaupa
húsnæði. Nú lofar Framsóknarflokkurinn hækkun á húsaleigubótum
til að auðvelda ungu fólki að leigja húsnæði. Jón Sigurðsson, ef
Framsóknarflokkurinn heldur áfram sinni stjórnarsetu ætlar hann þá
fyrir næstu kosningar að lofa úrræðum fyrir foreldra til að hafa ungt
fólk lengur í heimahúsum?
- Hvaða flokkur vill lofa mér því að
fara eftir ráðgjöf sérfræðinga um að besta staðsetning
Háskólasjúkrahúss sé í Fossvoginum. Ætla allir að lúffa fyrir
Alfreð Þorsteinssyni sem með valdhroka sínum hefur lýst því yfir að
enginn fái því breytt að háskólasjúkrahús verði byggt við
Hringbraut. Eða á valdabandalag Framsóknarflokksins, undir
verndarvæng Sjálfstæðisflokksins, að ráða þessu eins og öllu öðru?
- Hvaða flokkur ætlar að koma í veg fyrir að samgöngumiðstöð verði byggð úr alfaraleið í Vatnsmýrinni?
-
Er ekki augljóst að þegar horft er nógu langt fram í tímann að þá býður
Reykjavíkurflugvöllur á Lönguskerjum lang mestu möguleikana? Hann
verður í góðum tengslum við sjúkrahús, miðbæ Reykjavíkur og nágranna
sveitarfélög Reykjavíkur. Á Ísland enga stórhuga stjórnmálamenn
sem geta horft lengra fram í tímann en 4 ár?
- Hvernig sér Geir
H. Haarde fyrir sér Ísland framtíðarinnar. Hvaða erindi á hann
við okkar þjóð nú? Að hvers konar þjóðfélagi er hann að
stefna? Eða ætlar hann að æða stefnulaust áfram á sömu braut, í
átt að bandarísku samfélagi?
- Tekur Geir H. Haarde undir stefnu
næstu kynslóðar Sjálfstæðismanna í SUS sem ætla m.a. að skrúfa fyrir
ríkisstyrkta mennta- og menningarstarfsemi? Mun Geir H. Haarde
kjósa Sjálfstæðisflokkinn þegar fólkið í SUS er komið til valda í
flokknum, eða er framtíðarsýn Geirs sú sama og SUS en hefur gleymt því
að nefna það í kosningabaráttunni?
- Mun Geir H. Haarde halda
áfram með sovéskar aðferðir í atvinnusköpun líkt og fyrir austan?
Eða ætlar hann að hætta að búa til störf og snúa sér frekar að því að
búa hér til umhverfi þar sem atvinnulíf getur blómstrað?
Kárahnjúkavirkjun og álversframkvæmdir hafa kaffært aðrar
aðtvinnugreinar. Tekur hann undir stefnu Samfylkingarinnar um hið
Nýja atvinnulíf?
- Geir H. Haarde hvernig fer núverandi Landbúnaðarkerfi saman við stefnu flokksins?
-
Geir H. Haarde hvað hefur ávinnst með því að leyfa ekki pörum yngri en
24 ára að giftast þar sem annar aðilinn er frá landi utan EES? Er
samviska þín alveg hrein með svona lög í landinu?
- Geir H.
Haarde megum við eiga von á öðrum fjölmiðlalögum frá þér? Þú
varst nú til í að ritstýra aðeins fjölmiðlum þegar þú fórst í
laxveiðiferð í boði banka árið 2003.
- Jón Sigurðsson getur þú
fullyrt að ekki verði tap á Kárahnjúkavirkjun? Verður framkvæmdin
innan almennra arðsemismarka? Hefði ekki verið skynsamlegra að
beina þessari miklu fjárfestingu í eflingu á stoðþjónustu á austurlandi
og búa til umhverfi þar sem ný atvinnustarfsemi getur þrífst?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 11. maí 2007
Treystir Sjálfstæðisflokkurinn ekki eigin fólki?
Fimmtudagur, 10. maí 2007
UJR.is - myndarlegt jafnaðarfólk
Það er mér gjörsamlega óskiljanlegt afhverju fröken Paris fái ekki frið. Hvað kemur okkur það við hvað einhver dama út í heimi er að aðhafast. Hvað hefur hún unnið til þess að vera svona áhugaverð?
Það eru nú teknar myndir af öðru fólki líka án þess að það þurfi að vera í fréttunum. Um daginn var t.d. skotið myndum af flestum stjórnarmönnum UJR. Fallegt fólk. Og nú er mun líflegra að lesa greinina mína og annarra.
Samfara kosningabaráttunni hefur UJR.is verið í smíðum. Það gengur það vel í kosningabaráttunni að við verðum að fylla upp í frítímann með einhverju uppbyggilegu :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 10. maí 2007
Ekkert vesen og allt í góðu lagi
Stjórnin heldur velli skv. þessari könnun. En það er mjög svo tæpt. Samfylkingin mun fara yfir 30% í kosningunum og stjórnin mun falla.
Sjálfstæðisflokkurinn er að detta í raunhæfara fylgi, en á eflaust eftir að missa aðeins meira. Sem fyrrverandi sjálfstæðismaður þá skil ég ekki hversu margir halda í þennan lúna flokk.
Þeir sem kjósa
Sjálfstæðisflokkinn hljóta að vera í einhverri afneitun á stöðu okkar
þjóðfélags. Það að kjósa Sjálfstæðisflokkinn er yfirlýsing:
"Svona viljum við hafa það. Ekkert vesen og allt í góðu lagi!"
Sjálfstæðismenn ættu einnig að velta fyrir sér erindi flokksins og erindi Geirs H. Haarde við okkar þjóð.
Þá er hér holl lesning fyrir Sjálfstæðismenn sem hafa verið óánægðir með flokkinn sinn.
Leiðarvísir fyrir Alþingiskosningar 2007
Miðvikudagur, 9. maí 2007
Ingibjörg Sólrún setti afnám launaleyndar á dagskrá
Ég man ekki betur en að það hafi verið Ingibjörg Sólrún sem setti á dagskrá afnám launaleyndar.
Þetta útspil VG kemur ekki mikið á óvart. Aðrir flokkar hafa verið ansi duglegir að líkja eftir Samfylkingunni.
Annars er mjög mikilvægt að ekki sé hægt að múlbinda fólk með klausum um launaleynd í samningum.
Sjálfur hef ég mikið skrifað um launaleynd.





