Bein kosning framkvæmdavaldsins
Eftir að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis leit dagsins ljós er mér orðið alveg ljóst að stjórnmálalíf landsins er rotið. Stjórnmálamenn halda sig enn í skotgröfunum og sýna ekki nokkur merki þess að þeir hafi lært eitthvað frá hruni.
Þessi staðreynd hefur kallað fram þörf hjá fólki að ítreka enn og aftur óskir um nýja stjórnarskrá.
Í gær birtist grein eftir Njörð Njarðvík, Ný stjórnarskrá – nýtt lýðveldi. Hann hefur lengi kallað eftir nýrri stjórnarskrá. Ég er einnig orðinn langþreyttur á biðinni, enda er ekki hægt að segja að Icesave hafi tafið vinnu við nýja stjórnarskrá. Samhljóma grein skrifaði ég á Vefritið fyrir að verða ári síðan. Stjórnlagaþing gefi okkur trausta stjórnskipan.
Ég vil líka rifja upp mjög góða þingsályktunartillögu um beina kosningu framkvæmdavaldsins frá sex mjög framsýnum þingmönnum.
Ég bind vonir mína við að Alþingi klári frumvarp um stjórnlagaþing á þessu þingi. Ef svo verður ekki þá er alveg kristaltært að þingheimur hefur ekki gert sér grein fyrir inntaki skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis.

Guðlaugur Kr. Jörundsson - Gulli - er snillingur úr Breiðholtinu. Þaðan vakir hann yfir neðri byggðum Reykjavíkur og finnst alltaf jafn merkilegt að geta séð Snæfellsjökul út um gluggann.