The Muppets Christmas Carol

Jólaævintýri Prúðuleikaranna er nú rétt að hefjast á RÚV. Um hver jól er nauðsyn að horfa á einhverja útgáfu af A Christmas Carol eftir Dickens. Prúðuleikaraútgáfan er eins sú albesta. Frábært framtak hjá RÚV að sýna hana. En ég hefði nú viljað hafa þessa sýningu um sjálf jólin.

En hvað um það, þetta er fín leið til að koma jólaskapinu í gang. Það er nú víst fyrsti sunnudagur í aðventu á morgun. Spurning um að finna eitthvað jólaskraut – en ekki fresta því fram yfir jól, líkt og í fyrra …

Efnisorð:

Færslan var rituð hinn 28. nóvember 2009 | í Blogg

Skildu eftir athugasemd