LADDINN 2009 : Eyþór Ingi
Það er bláköld staðreynd að Laddi er einn mesti snillingur sem uppi hefur verið. Hæfileikar hans eru óviðjafnanlegir. Hann hefur verið í uppáhaldi hjá mér frá því ég man eftir mér.
Litla hafmeyjan á Rás 2 hefur síðustu föstudagskvöld verið með keppnina LADDINN 2009. Þar keppa menn í Ladda eftirhermum. Yndislegar upptökur af þessum keppnum eru aðgengilegar á YouTube.
Eyþór Ingi, „Bandið hans Bubba“-stjarna, er lang bestur og nær Ladda fáránlega vel. Ég mæli með myndbandinu hér fyrir ofan og einnig þessu hér.
Efnisorð:video

Guðlaugur Kr. Jörundsson - Gulli - er snillingur úr Breiðholtinu. Þaðan vakir hann yfir neðri byggðum Reykjavíkur og finnst alltaf jafn merkilegt að geta séð Snæfellsjökul út um gluggann. 


nóvember 28th, 2009 at 0:18
Djöfull nær hann honum vel…
nóvember 28th, 2009 at 0:20
það er scary