Nýtt útlit á bloggið

Nýtt útlit á bloggið

Jæja, nú er að hysja upp um sig blogg-buxurnar. Ég hef hresst aðeins upp á útlitið á þessum ágæta vef. Nú er bara að vona að það gefi mér innblástur í að skrifa hér oftar.

Ég á örugglega eftir að pota aðeins í þetta útlit, en ég er nokkuð sáttur með það. Næst á dagskrá er að taka saman og gera aðgengilegt það sem ég hef skrifað á öðrum vígstöðum.

Ég henti einnig upp síðu um langafa, Jörund Gestsson, í leiðinni. Einnig uppfærði ég síðuna um vefinn, setti m.a. inn skjáskot úr CV.

Færslan var rituð hinn 17. nóvember 2009 | í Blogg

2 athugasemdir við “Nýtt útlit á bloggið”

  1. Valgeir Helgi Says:

    Mjög flott síða, kannski aðeins of egósentrísk fyrir minn smekk en samt mjög flott :D

  2. Gulli Says:

    Takk fyrir það Valli. Ég er brautriðjandi og hér er lagður grunnurinn að enn persónulegri bloggum. Bloggin eru orðin svo mörg og keimlík að þau verða að fara að skera sig betur úr.

Skildu eftir athugasemd