Banabiti Vefritsins?

Banabiti Vefritsins?

Vefritið virðist nú vera endanlega dautt, eftir ansi stopular greinabirtingar í sumar og haust. Ef það reynist rétt þá var ég banabiti Vefritsins. Það var birt grein eftir mig 15. september og síðan þá hefur engin ný grein verið birt.

Það sem er mjög svo kaldhæðnislegt við þennan banabita er að greinin mín var hvatning til ungs fólks að taka þátt í pólitísku starfi. Það má þó kannski draga fram einn ljósan punkt. Þessi hvatning er nú orðin mest lesna grein Vefritsins frá upphafi.

Andlát Vefritsins ber að syrgja. Það var hið fínasta málgagn ungs félagshyggjufólks. Megi það rísa upp frá dauðum.

Færslan var rituð hinn 31. október 2009 | í Blogg

Skildu eftir athugasemd