Minn listi breyttur – Helgi Hjörvar í 2. sætið

Minn listi breyttur – Helgi Hjörvar í 2. sætið

Ég þarf víst ekki að senda Ingibjörgu Sólrúnu í frí. Hún fór bara sjálf. Ég verð því að endurhugsa 2. sæti listans.

JBH fór á minn lista fyrst og fremst til höfuðs ISG. Ekki er þörf á því núna og því lítil sérstaða í frambjóðandanum JBH. Ég þarf að finna frambjóðanda sem getur leitt lista. Ég er enn á því að gefa Össuri svo ekki kemur hann til greina. Eftir mikla ígrundun tel ég að Helgi Hjörvar geti skapað traust um listann í Reykjavík með sínu skarpa pólitíska nefi og mikilli reynslu. Því miður sækist hann ekki eftir 2. sætinu og hefur það valdið mér mestum efasemdum um Helga. En ég held að hann sé bara kurteis við vin sinn Össur og sé í raun alveg reiðubúinn að leiða listann. Þá finnst mér einnig sem Helgi hafi fínan stuðning í 2. sætið miðað við samtöl mín við fólk. Í augnablikinu tel ég enga aðra en Jóhönnu og Helga hæfari til að leiða kjördæmin í Reykjavík og sópa atkvæðum að Samfylkingunni.

Ég vona innilega að sem flestir veit Helga Hjörvari brautargengi í 2. sætið.

Þá losnar um 6. sætið á listanum og Dofri Hermannsson kemur þar inn. Ég hef trú á því að hann geti skapað mörg störf með nýsköpunarlausnum og grænum lausnum.

Þetta tel ég vera sterkasta listann og þennan lista mun ég kjósa:

1. Jóhanna Sigurðardóttir – óumdeilanlegt traust og óviðjafnanleg reynsla.
2. Helgi Hjörvar - rökstutt að ofan.
3. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir – sagði sig úr stjórn Seðlabankans og sú eina sem þorði gegn Össuri og co.
4. Skúli Helgason – samkeppnin er mikil um þetta sæti. Hópurinn samanstendur að framsæknum nýliðum og gömlum góðkunningjum sem þorðu ekki í forystuna. Skúli er þarna sterkasti nýliðinn.
5. Anna Pála Sverrisdóttir – flottur fulltrúi unga fólksins. Mjög hæfur stjórnmálamaður sem hefur sannað sig sem formaður Ungra jafnaðarmanna.
6. Dofri Hermannsson – maður nýsköpunar og umhverfismála.
7. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir – vel menntuð, hefur skilað góðu starfi í stjórnsýslunni og þorir að tala.
8. Pétur Tyrfingsson – veit hvað hann meinar og er nauðsynleg rödd inn á Alþingi … þó ég sé ekki alltaf sammála honum.

Færslan var rituð hinn 9. mars 2009 | í Pólitík

8 athugasemdir við “Minn listi breyttur – Helgi Hjörvar í 2. sætið”

  1. Aggi Says:

    Er ekki undarlegt að vilja fyrir helgi að JBH leiði lista flokksins í öðru Reykjavíkurkjördæminu, en eftir helgi vilja ekki einu sinni sjá hann á lista?!

  2. Gulli Says:

    Ég þóttist skýra það með: „JBH fór á minn lista fyrst og fremst til höfuðs ISG. Ekki er þörf á því núna og því lítil sérstaða í frambjóðandanum JBH.“
    Helsta baráttumál JBH var að ISG færi frá. Þar var ég sammála honum. Eftir að hafa rætt við hann sjálfan þá fann ég hversu eindregið hann vildi að Jóhanna tæki forystuna. Ég er honum sammála þar einnig. Það að kjósa JBH er ekki sterkasti leikurinn til að fá Jóhönnu til forystu.

    JBH sem leiðtogi í Reykjavíkurkjördæmi hefði hugsanlega átt einhvern smá séns í formannsslag við ISG. En nú er ekki þörf á þeim slag og þar með ekki JBH.

  3. Aggi Says:

    Þú varst semsagt tilbúin til að fá mann til að LEIÐA einn af listum Samfylkingarinnar til að losna við eina manneskju… Næstu 4 ár hans á þingi væru þá bara herkostnaðurinn af því? Mér finnst það full dýru verði keypt.

  4. Gulli Says:

    Það stóðst mitt kostnaðarmat. En við munum ekki getað reiknað okkur á sömu niðurstöðu því það er vitað að við metum ekki á sama hátt hversu alvarleg sú staða var sem ISG bauð okkur upp á þann 28. febrúar.

  5. Aggi Says:

    Gott svar! Hagfræðingarnir þekkja jú að forsendurnar skipta nokkru máli við kostnaðar-ábatagreininguna :)

  6. Gulli Says:

    :) ég vissi að þetta mundir þú skilja. Það er hægt að rökstyðja allt með tölum, bara stilla forsendurnar rétt. :) Ertu ekki að fá þér meistaragráðu í því núna :)

  7. Guffi Says:

    Góð breyting!

  8. Jón Bragi Sigurðsson Says:

    Pétur Tyrfingsson er bara afdankaður kommúnisti sem lítið hefur lært á langri ævi þó hann geri sitt besta til að leyna því.

    Nú hefur kallgreyið gripið til þess ráðs að ritskoða komment á bloggi sínu til þess að einginn geti nú komið upp um hann…

Skildu eftir athugasemd