Gríðarlegt magn ruslpósts

Gríðarlegt magn ruslpósts

Gríðarlegt magn af fjölpósti lak inn um póstlúguna í dag. Það er nú ágætt að fá skilaboð frá fyrirtækjum landsins um hitt og þetta en það hlýtur að vera hægt að finna betri leið en fjölpóst. Í okkar rafræna heimi hlýtur það að teljast til liðinna tíma að senda út fjölpóst á prenti. Það hlýtur einnig að vera skaðlegt umhverfinu að framleiða svona mikið af prentefni – í það minnsta gerir það umhverfinu ekkert gott þó að við endurvinnum pappírinn.

Það hlýtur að vera hægt að leysa þessa auglýsingaþörf á annan hátt. Væri ekki t.d. hægt að koma upp minniskorta- eða USB-lyklakerfi sem virkaði þannig að pósturinn mundi dreifa lyklum með nýju innihaldi á hverjum morgni til landsmanna og taka til baka lykil frá því deginum áður. Vera með tvo lykla í gangi á hvern póstkassa – einn í notkun hjá lesanda og hinn í hleðslu hjá pósthúsinu. Ef pósturinn finnur ekki lykil við póstkassa lesanda þá fær hann ekki fjölpóst dagsins í dag. (þeir sem vilja ekki fjölpóst skilja þá ekki eftir sinn lykil við póstkassann).  Lyklinum væri svo hægt að stinga í tölvu eða jafnvel eitthvað ódýrt skjátæki sem gæti lesið af lyklum frá póstinum. Snjallara væri þó sennilega að hanna skjátæki sem væri með 3G korti og fengi bara fjölpóstinn sendan þráðlaust.

Eða bara hætta með þennan fjölpóst! Er ekki nóg að hafa auglýsingar í blöðum, útvarpi, sjónvarpi og interneti?

Færslan var rituð hinn 13. september 2007 | í Blogg

Skildu eftir athugasemd