Ásgeir Elíasson
Það var átakanlegt að heyra þá frétt í fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld að Ásgeir Elíasson hafi látist í dag. Mig langar að taka það fram að mér þótti fréttin vera vel gerð. Fram birtir einnig góða grein. Sem gamall Framari þykir mér andlát hans mjög miður. Þó að Ásgeir hafi ekki komið fram í fjölmiðlum sem sannfærandi maður þá segir afrekaskráin sitt. Ásgeir virtist vingjarnlegur maður með sín sérkenni – hatturinn var hans merki.

Guðlaugur Kr. Jörundsson - Gulli - er snillingur úr Breiðholtinu. Þaðan vakir hann yfir neðri byggðum Reykjavíkur og finnst alltaf jafn merkilegt að geta séð Snæfellsjökul út um gluggann.