6 ára blogg afmæli

6 ára blogg afmæli

Í dag á ég 6 ára blogg afmæli. Líkt og fyrir 6 árum er íslenska landsliðið í sviðsljósinu, en ég vona að sá 11. verði ekki eins tíðindamikill.

Lengst af var blogg mitt á mínu háskólavefsvæði, http://www.hi.is/~gullikr/digitalbomb/, en það mun lokast á næstu dögum. Þá var notast við hinn ágæta blogger.com. Fyrsta árið var ekki hægt að komment-a hjá mér en haustið 2002 tók ég í notkun þjónustu frá haloscan.com . Nú hýsi ég bloggið mitt sjálfur og notast við WordPress bloggkerfið.

Bloggið stytti mér stundirnar í náminu og veitti mér nauðsynlega hvíld frá bókunum. Nú er eiginlega bara bloggað af gömlum vana því það hefur sannað gildi sitt. Bloggið hefur mikið sögulegt gildi – ég hef mjög gaman að kíkja á gamlar færslur og sjá hvað maður var einu sinni að hugsa.

Lengi var á planinu að forrita eigið bloggkerfi en tími aldrei fundist í það. Í dag skiptir hraðinn svo miklu máli að maður hugsar ekki um að smíða hluti frá grunni. Maður finnur bestu lausnirnar og púslar þeim saman og býr kannski þannig til nýja og flotta lausn.

Sumarið ætlaði ég að nota til að fríska upp á þessa bloggsíðu með nýju útliti og fídusum. En lítið hefur gerst í því. Á þessum afmælisdegi átti að taka í notkun nýtt útlit en því miður tókst mér ekki að halda í þá áætlun.

Færslan var rituð hinn 9. september 2007 | í Blogg

2 athugasemdir við “6 ára blogg afmæli”

  1. Einar Says:

    Allir tölvunarfræðingar sem blogga fá sömu hugmynd: Aha, ég bý bara til mitt EIGIÐ bloggkerfi! Það getur ekki verið svo erfitt!

    Nokkrum mánuðum seinna situr maður uppi með hálfklárað kerfi sem býður uppá svona 10 % af fítusunum sem blogger/wordpress/mt bjóða uppá og til hvers? (Jamm, been there done that, skipti yfir í Wordpress eftir að vera orðinn þreyttur á því :) )

  2. Gulli Says:

    Ég hef einmitt séð nokkur svoleiðis kerfi :)

    En sem betur fer náði ég aldrei svo langt að byrja.

Skildu eftir athugasemd