Vodafone ekki með samkeppnisfært ljós

Vodafone ekki með samkeppnisfært ljós

Lengi vel var ég með ADSL tengingu hjá Vodafone og líkaði vel. Fyrir rúmu ári var ljósleiðari tengdur í íbúðina mína og þá skipti ég yfir í Hive. Nú er Vodafone að bjóða internettengingu í gegnum ljósleiðarann (frá Gagnaveitu Reykjavíkur). Ég vil gjarna losna við Hive og skipta aftur yfir. En ég lýsi yfir vonbrigðum mínum með uppsetninguna hjá Vodafone.

Gagnaveitan auglýsir að internetið í gegnum ljósleiðarann sé með sama hraða í báðar áttir. Hjá Hive er ég með 10 Mb/s í báðar áttir. Vodafone hefur hins vegar tekið fáránlega ákvörðun um að takmarka sendingarhraðann. Minni sendingarhraði er óumflýjanlegur í ADSL kerfinu, en Vodafone hefur tekið þá ákvörðun að nýta ekki nýja tækni til fulls. Þeir eru að reka undarlega haftastefnu.

Sjálfur er ég með Ljós 10 hjá Hive. Greiði fyrir það 4 þús. krónur á mánuði. Þar sem mér er annt um sendingarhraða þá er ódýrasti pakkinn sem kemur til greina hjá Vodafone á 6 þús. krónur. Þar fæ ég þó umfram niðurhalshraða upp á 2 Mb/s, eða alls 12 Mb/s og 10 Mb/s sendingarhraða. Þar að auki fæ ég 10 sinnum meira í erlent niðurhal, sem ég hef reyndar engin not fyrir. Það mun því kosta mig 2 þús. krónur á mánuði að skipta í Vodafone. Það er því ekki að gerast.

Það er erfitt að bera saman Ljós 10 við Vodafone pakkana. En tökum nú beinan samanburð. Ljós 20 hjá Hive er á 6 þús. krónur eins og 12 Mb/s tengingin hjá Vodafone. Hive rústar Vodafone í þessum samanburði.

Vodafone Hive
Verð 5.990 5.990
Niðurhalshraði 12 Mb/s 20 Mb/s
Sendingarhraði 10 Mb/s 20 Mb/s
Erlent niðurhal 40 GB ótakmarkað

Niðurstaða: Vodafone leyfir viðskiptavinum sínum ekki að nýta kosti ljósleiðarans og bjóða ósamkeppnisfær verð. Spurning hvort þessi takmörkun á sendingarhraða sé gerð með vitneskju Gagnaveitunnar, sem auglýsir svo skýrt sama hraða í báðar átti á internetinu. Ég skora á Vodafone að hysja upp um sig buxurnar og gera betur svo ég geti flutt viðskipti mín aftur til þeirra.

Færslan var rituð hinn 25. júní 2007 | í Blogg

4 athugasemdir við “Vodafone ekki með samkeppnisfært ljós”

  1. Tómas Hafliðason Says:

    Helv. drasl. Það er einfaldlega enginn ljósleiðari í boði heim til mín, í vinnuna eða til foreldra minna. Langaði einmitt að fá einhvern góðan hraða :(

  2. Gulli Says:

    Og ég bý í einu elsta hverfi borgarinnar :p

  3. Róbert Orri Says:

    Mig rekur nú minni í það að Vodafone eigi Hive. En alveg sammála fáránlegt að þetta sé ekki komið í fleiri hverfi. Virðist það vera random hvaða hverfi / götur fá ljós :S

  4. Vodafone ljósið fer versnandi : w e B L O G (G) Says:

    [...] nokkru ritaði ég hér um internetþjónustu Vodafone yfir ljósleiðara. Niðurstaðan var einföld, Vodafone var [...]

Skildu eftir athugasemd