eyjan.is – facebook
Þá er eyjan.is komin í loftið. Til hamingju með það Andrés. Ég er spenntur fyrir hugmyndinni og vonandi mun þessi vefur dafna vel. Þess má geta að eyjan.is nýtir sér BloggGáttina til að vera í tengslum við bloggheima, enda er það í bloggheimum sem hlutirnir gerast!
Þórir benti mér á Facebook. Svona network-dæmi eins og MySpace. Nema á Facebook fær maður ekki flog við að skoða síður og þær angra mann ekki með óvæntri tónlist.
Já, og svo var ég loks að búa til reikning á Last.fm. Betra er seint en aldrei.

Guðlaugur Kr. Jörundsson - Gulli - er snillingur úr Breiðholtinu. Þaðan vakir hann yfir neðri byggðum Reykjavíkur og finnst alltaf jafn merkilegt að geta séð Snæfellsjökul út um gluggann. 


júní 25th, 2007 at 9:27
[...] Gulli fjallar um fyrirbrigðið sem á sjálfsagt eftir að verða nýjasta æðið. Ég hef ekki orðið [...]