Einn og hálfur tími frá Hvalfjarðagöngum

Einn og hálfur tími frá Hvalfjarðagöngum

Kom í bæinn, norðan af Ströndum, klukkan tíu í kvöld. Ég var hátt í einn og hálfan tíma að komast frá Hvalfjarðagöngunum og í bæinn. Þetta er bara rugl! Heyrir þú það herra samgönguráðherra!

Lágmark að setja kamra við veginn á 5 km fresti ef þetta ástand á að vera normalt!

Annars var fínt á Hellunni.  (svo bið ég að heilsa bílstjóranum á RÚV bílnum sem tók framúr mér á ólöglegum hraða á malarvegi á Ströndunum.  fékk fínt grjótkast yfir bílinn.  hann gat ekki beðið eftir að komast á malbikið sem var handan næstu beygju.)

Færslan var rituð hinn 25. júní 2007 | í Blogg

Skildu eftir athugasemd