1. apríl – nýtt upphaf
Frá 9. september 2001 hef ég haldið úti bloggsíðu á vefsvæði mínu hjá HÍ. Hef ég ávallt notast við kerfið á blogger.com.
Nú hefst nýtt skeið í tilvist þessa bloggs. Nú keyrir það á mínum eigin vefþjóni, undir eigin léni, gulli.is, og í kerfinu WordPress.
Einhvern tíma mun ég taka mér í að þróa þennan vef hér og færa yfir efni af gömlu síðunni. Öll gömlu bloggin eru þó komin yfir.
Ég mun breyta útlitinu við fyrsta tækifæri.
Meira verður ekki ritað á gömlu digitalbombuna. Blessuð sé minning hennar.

Guðlaugur Kr. Jörundsson - Gulli - er snillingur úr Breiðholtinu. Þaðan vakir hann yfir neðri byggðum Reykjavíkur og finnst alltaf jafn merkilegt að geta séð Snæfellsjökul út um gluggann. 


apríl 5th, 2007 at 12:18
Ég er reyndar að brjóta þá reglu að komment eigi að eiga við þá færslu sem þau eru skrifuð við en ég verð að benda þær á færsluna mína „Rss pælingar“. Þar fór ég óvart í hugmyndavinnu fyrir BloggGáttina. Kíktu og pældu.
apríl 5th, 2007 at 13:43
Fínar pælingar og ekki nýjar fyrir eyrum okkar. Það er ekki hægt að gera allt í einu. BloggGáttin mun halda áfram að þróast á næstu mánuðum.