Stöð 2 sendir út um gervihnött
Þau ótrúlegu tíðindi komu mér fyrir sjónir nú rétt áðan að Stöð 2 hefur hafið útsendingar um gervihnött. Mér skilst að það sé bara kynningarmynd / stillimynd ennþá. Þessi tíðindi eru í boði umræðuhóps Öreindar. Norðurljós eru nú skráð fyrir tveimur rásum á gervihnettinum Astra 2, en aðalhlutverk hans er að senda út Sky Digital í Bretlandi. NLC – Northern Light Communications er skráð fyrir þessum rásum og rásirnar tvær eru NLC promo. Eins og má sjá hér.
Fastir liðir eins og venjulega:
- Rekum Atla
- Endilega lesið báðar greinarnar mínar um HÍ og tjáið mér hversu mikil vitleysa þetta er eða hversu mikill snillingur ég er ![]()
Haloscan comment:

Guðlaugur Kr. Jörundsson - Gulli - er snillingur úr Breiðholtinu. Þaðan vakir hann yfir neðri byggðum Reykjavíkur og finnst alltaf jafn merkilegt að geta séð Snæfellsjökul út um gluggann.