The Millenium War / WW-III
Ótrúleg hryðjuverk voru unnin í dag í Bandríkjunum
og spyrja því margir sig hvort þetta sé upphafið
á nýrri styrjöld?
Er spádómur Nostradamusar að koma í ljós?
Ef þetta er hinn stóri dagur þegar WW-III braust út
þá ætla ég að rita hér til þess að minnast þess að
ég var á þjóðarbókhlöðunni að læra stærðfræði þegar
ég fékk fréttirnar. Ég sá fréttirnar af litlum skjáum á
fjórðu hæð bókhlöðunnar (án hljóðs). Kl. var um 15.
Svona, nú get ég minnst hvar ég var eftir 50ár þegar
verður litið til baka á þennan viðburð. (eins og fólk
hefur eflaust tekið eftir þá er alltaf verið að spyrja fólk
hvar það var þegar einhverjir stóratburðir urðu, hvernig
sem stendur á því).
Að lokum skulum við vona að ekki verði úr stríð eða
hrun á verðbréfamörkuðum(sem eru reyndar miklar
líkur á).

Guðlaugur Kr. Jörundsson - Gulli - er snillingur úr Breiðholtinu. Þaðan vakir hann yfir neðri byggðum Reykjavíkur og finnst alltaf jafn merkilegt að geta séð Snæfellsjökul út um gluggann.